Thursday, August 26, 2004

Þetta er að bresta á!

Jæja gott fólk. Tæpur sólarhringur í þetta. Stemningin er gríðarleg og mætingin verður með besta móti.
Það eru nokkrir mikilvægir punktar sem ágætt er að koma á framfæri hér:
1.000 nýkrónur verða að greiðast við hurðina af öllum sem ætla inn. Mikilvægt er að fólk hafi eyrinn í formi reiðufjár, en ekki í plasts. Við höfum ekki aðgang að posa við innganginn. Hraðbanka er að finna einungis 200 metra frá Félagsheimilinu. Hann er staðsettur við verslun Bónuss.

Örvæntið samt ekki, menn geta fært áfengið debet- eða kredit megin með kortum á barnum (skipuleggjendur undanþiggja sig bótaskyldu vegna bóhaldsmistaka og FIT-færslna við barinn - en benda á að heimasíma Tómasar Sölvasonar er að finna á www.simasskra.is)

Sem leiðir okkur að öðrum punkti. Félagsheimilið sér um barinn. Það þýðir aftur að ekki er velkomið að koma með eigið áfengi í salinn. Verðinu á barnum verður stillt í hóf og allur aðgangseyrir sem kemur í kassann umfram kostnað mun fara beint í það að niðurgreiða drykkina, svo að líkindum verður sopinn ódýr og góður.

Ástæðan fyrir þessari tilhögun er sú að við fáum salinn á góðum kjörum og vorum ekki tilbúin að greiða mun hærri upphæð fyrir að hafa barinn á eigin vegum eða engan bar. Það hefði kostað aukastarfsmenn á okkar vegum og mun hærri leigu. Það má reikna með því að aðgangseyririnn hefði þurft að vera a.m.k. helmingi hærri ef sú leið hefði verið farinn. Afleiðingin af því hefði verið sú að margir þeirra sem ekki ætla að ölvast hefðu sleppt því að mæta og greiða niður verðið fyrir hina mörgu þyrstu.

Og hér er skemmtileg röksemdarfærsla, sem Chicago-hagfræðingurinn Gary Becker setti fram þegar gamlir háskólanemendur hans leituðu til hans með svipaða klemmu fyrir heimkomupartý Beckers, eftir að hann hafði tekið við Nóbelsverðlaunum.
Becker benti á að ef fólk hefði verið tilbúið til þess að greiða 1.000 krónum meira fyrir að drekka sitt eigið áfengi eða niðugreitt áfengi, þá væri hagfræðilega rétt að þeir hinir sömu litu á hinn ódýra aðgangseyri sem bónus og reiknuðu einfaldlega með þessum þúsund krónum aukreitis sem niðurgreiðslu á eigin drykkju :) Þessi röksemdarfærsla sem nefnd hefur verið Alcolibrium hefur staðið óhrakin um áratugaskeið og er einn af hornsteinum nútímahagfræði.

Hafið í huga að það er ekkert félag sem stendur fyrir þessari skemmtun. Við erum einungis þrjú sem höfum skipulagt þetta gilli og erum ekki tilbúin að taka persónulega á okkur hugsanlegt tap af því og vonum að fólk skilji það. Sem fyrr segir; um leið og við náum nógu mörgum inn til að greiða leigu á sal og tækjum og borga plötusnúði verður barinn niðurgreiddur.

Sjáumst spræk,
Eirik,
Ingibjörg
og Pétur Árni

Friday, August 13, 2004

Umræður

Við erum búin að bæta við post fyrir hvern bekk þar sem allir geta skipst á commentum eins og villtir væru. Þetta var smá skítamix, en alla bekkina er að finna í archives frá January 1999. Ekki gleyma að skrifa nafnið ykkar við hvert komment.

Wednesday, August 04, 2004

Staðir og stundir fyrir hittinga

Þegar hver bekkur hefur ákveðið hvar og hvenær hittingur er fyrir Reunion-ið sendið þá Eika eiriksor@hotmail.com eða Ingibjörgu ingibjorgk@hotmail.com póst með upplýsingunum og þá munum við setja upplýsingarnar inn. Þið getið líka sett inn comment...

6-D ríður... á vaðið og hefur ákveðið að hittast í híbýlum Báru Bjarkar áður en haldið er í salinn. Ekki fylgdi sögunni hvar Bára heldur til um þessar mundir, en bekkjarbræður hennar og -systur geta væntanlega haft upp á henni til að komast að því, eða hringt í Heiðrúnu (sjá neðar).

6-S er líka kominn með partý. Það verður haldið á Brávallagötunni - þó ekki hjá Bibbu, heldur Írisi Hrönn. Verandi kunnugur staðarhaldara gæti ég best trúað því að R&B tónlist verði leikinn í efri hluta desibel-kvarðans. Áfram með smérið!

6-L hefur ákveðið að setjast að snæðingi hjá Signýju, áður en haldið er í glauminn. Hún á heima í Álfatúni 13, Kópavogi.

6-E mun hittast hjá Jónu. Nánari útfærslu má sjá á spjallþræði 6-E, í archives.

Annað snjallt.
Óli Palli rokklendingur, sem verður plötusnúður hjá okkur, hefur sérstaklega beðið um að fá nokkur óskalög fyrir fram. Eitthvað sem okkur þótti hipp og kúl þá - óháð því hvernig tíminn hefur leikið það. Komiði endilega með tillögur í "comments" og ekki gleyma að kvitta nafnið ykkar undir. Ekkert er of hallærislegt. Hverjir voru til dæmis slagararnir á Rimini, þeim smekkvísa stað.
Ég man ekki hvort það var Lord Byron eða Edgar Allan Poe sem fangaði tíðarandann í eftirfarandi línum:
"I´m blue dabba-dí-dabba-da-da-dabba-dí-dabba-da-dabba-dí-dabba-da.
I´m blue dabba-dí-dabba-da-da-dabba-dí-dabba-da-dabba-dí-dabba-da."

Saturday, May 29, 1999

Fimm ára endurfundir

Hvort sem þér er það ljúft eða leitt er fimmtipartur lífs þíns liðinn síðan þú útskrifaðist úr Verzló. Eftir að hafa hangið með þér í fjögur ár eigum við rétt á að vita hvað orðið hefur um þig.
Endurfundir fimm ára stúdenta úr VÍ munu eiga sér stað föstudaginn 27. ágúst n.k. í Félagsheimilinu Seltjarnarnesi. Óli Palli rokklandskóngur mun sjá um tónlistina. Húsið opnar klukkan 21 og lokar ekki fyrr en undir morgun.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur , óháð komutíma, áfengisneyslu, hjúskaparhögum o.s.frv.

Mælst er til þess að hver bekkur hittist áður en haldið er í Félagsheimilið, kýli vömb og væti kverk fyrir komandi átök.

Allir sem ætla að láta sjá sig eru vinsamlegast beðnir um að staðfesta komu sína við fulltrúa síns bekkjar fyrir 20. ágúst. Þeir eru sem hér segir:

ATH! ATH! ATH!
Ekki senda viðkomandi tölvupóst með því að smella á netföngin hér á síðunni. Það virðist ekki virka. Notið frekar ykkar eigið tölvupóstfang.

6-D: Heiðrún Grétarsdóttir heidrun@nikitaclothing.com, 8695292
6-E: Eirik Sördal, eiriksor@hotmail.com, 8618799
6-F: Stefán Karlsson, stebbo1@hotmail.com, 8657615
6-G: Pétur Árni Jónsson, paj@hi.is, 8962295
6-L: Katrín Bjarney Guðjónsdóttir, katabg@hotmail.com, 8667552
6-R: Guðmundur Friðgeirsson, mummi@ru.is, 8684933
6-S: Þorgerður Arna Einarsdóttir, thorgerd@kbbanki.is 8566533
6-T: Þóra Helgadóttir, thorahe@hi.is, 8202609
6-X: Ingibjörg Kristinsdóttir, ingibjorgk@hotmail.com, 8695892

Reynt verður að hafa samband við alla sem voru í árganginum, en þar sem máttur lausmælginnar er meiri en tækninýjunga á borð við farsíma og tölvupóst, eru allir sem þessa tilkynningu lesa, beðnir um að gaspra um inntak hennar vítt og breitt.

Til undirbúnings:
Lestu eftirfarandi yfir eftir þörfum. Gott er að lesa einu sinni á dag fyrst um sinn. Byrjaðu hægt og auktu svo hraðann og fjölda yfirlestra eftir því sem nær líður 27. ágúst.

"Áttu tvö?"
"Ég splæsi. Ég á nóg af þessu."
"Nei vá! Það eru svona þrjúoghálft ár síðan við hættum saman!"
"Ég þekkti þig ekki með þessi gleraugu og bíddu, varstu ekki dökkhærð?"
"Þú ert að misskilja þetta. Baugur er markaðsráðandi aðili á matvælamarkaði og svona hringamyndunarlög eru alls staðar til!"
"Svona er ég (lesist drafandi). Take it or leave it. Ef þú fílar það ekki þá verður bara að hafa það. Bara take it or leave it bara. Ha? Svona er ég!."
"Sígó?"
"Svo skipti ég yfir í Bifröst, þegar ég kom heim frá Perú."
"Er ég að trufla eitthvað?"
"Mér fannst hann alveg víðáttuleiðinlegur!"
"Nýjan Opel Corsa? Spoiler kit og Kenwoodgræjur upp á 200.000 kall. Fann ekki fyrir því."
"Viðskiptafræðingur"
"Eld?"
"Skaftpottareglan? Læt það nú vera. Ég er nú bara feginn að þurfa ekki að beygja þýska sögn það sem eftir er ævinnar."
"Það gerðist á Bíóbarnum. Eða Ingólfscafé. Það var alla vega ekki hægt að læsa hurðinni, man ég."
"Nei, nei. Ég dansa ekki."
"Mér finnst þessi gleraugu alveg dead sexy, en heyrðu varstu ekki alltaf dökkhærð?"
"Sígó?"
"Svona er ég (lesist þvoglumælt). Take it or leave it. Ef þú fílar það ekki þá verður bara að hafa það. Take it or leave it. Bara take it or leave it bara. Ha? Svona er ég!."
"Tók masterinn í Waco, Texas. Ivy league. Rosa dæmi."
"Ég verð að segja þér svolítið. Komdu á barinn!"
"Heyrðirðu að það var keyrt á Adda?"
"Nei, bíddu, sko, þetta er ekki eitthvað píramída bullshit sko. Ef þú færð þrjá undir þig og ert með mig sem fóstra ,skilurðu, þá geturðu orðið companion innan mánaðar og farið á ráðstefnu til Kentucky, ha! Svo kemur Evrópa á eftir okkur inn í þetta."
"Löngu hættur. Fór í meðferð eftir Rimini."
"Biddu hann um eitthvað með Snap eða Crash Test Dummies"
"... verðum að fara að hittast"
"Svona 80 - 85 fermetrar. Ný eldhúsinnrétting. Bæsað Kärs-parkett"
"Stelpur dansa!"
"Sorry maður. Ég man oftast nöfn. Það er bara stolið úr mér. Það voru bara svo margir í bekknum og varstu ekki líka alltaf dökkhærð?"
"Skál!"
"Ariel er allt í lagi, en ég hef náð hákarlalýsisblettum og sólberjasvala úr smekknum hans Leó Blængs með Vanish."
"Eld?"
"Bæinn? Klukkan er ekki nema ... hálf fjögur. Það er ekkert. Ég kem okkur fram fyrir röðina á Seltik kross. Mágur minn er í hurðinni, þessi sem lánaði okkur hjólhýsið fyrir Húsafellsferðina."
"Taktu nafnspjaldið mitt. Ég bara veit ekkert hvenær ég er laus. Þú veist, þegar forstjórinn er í fríi og svona. Egilsstaðir, London, Linkjöping. Wherever I lay my hat is my home. Djók."
"Svona er ég (lesist með bindi á hausnum, annað augað hálfvegis í pung og lafandi neðri kjálka, án þess að kyngja munnvatni). Take it or leave it. Í alvöru. Nei. Nei! Hlustaðu á mig í alvöru. Ef þú fílar það ekki þá take it or leave it bara. Bara verður bara að hafa það bara. Ha? Svona er ég!. Get ég fengið plastglas undir þennan bjór hérna eða er það til of mikils mælst?"
"Maður segir keltik kross."
... og fleiri gullkorn.

Thursday, May 27, 1999

Margspurðar spurningar

Hér er nokkrum spurningum svarað, sem virðast oftast skjóta upp kollinum. Ef þið eruð með einhverjar spurningar sem ekki er svarað hér, þá vinsamlegast setjiði þær fram í "comments" og þeim verður svarað hér.

Af hverju er þetta á þessum tíma?
Af því að í könnun sem gerð var meðal útskriftarárgangsins 1998 kom í ljós að mánaðamótin ágúst/september hentuðu flestum best. Þeir sem eru við nám í útlandinu eru flestir heima á þessum tíma og svo framvegis.

Af hverju er þetta ekki frekar haldið á laugardeginum, þegar flestir eiga frí um daginn?
Af því að afmælis- og brúðkaupsveislur eru oftar haldnar á laugadögum en föstudögum. Auk þess hentaði föstudagurinn betur fyrir rekstraraðila staðarins.

Af hverju er svona stuttur fyrirvari?
Já, sorrý. En ef mánaðarfyrirvari er of stuttur fyrir þig hefurðu augljóslega svo lítinn tíma að vandséð er hverju þrír eða sex mánuðir myndu breyta. Það er leiðinlegt að allir komist ekki sem vilja, en svoleiðis verður það alltaf. Sem fyrr segir á þessi tími að henta flestum samkvæmt óháðum rannsóknum fyrirrennara okkar :)

Hvað ef ég kemst ekki?
"Tough luck! Life ain´t fair"
- Baldur Sveinsson, í saltíma 1998 -

Hvar er Félagsheimilið á Seltjarnarnesi?
Á Seltjarnarnesi? (búrúmmbúmmtssssss)

Hvar á Seltjarnarnesi?
Í sama húsi og sundlaugin með saltvatninu.

Hvar er hún?
Við hliðina á Bónus.

Má koma með maka?
Já, já.
Ef hann borgar 1.000 krónur, er skemmtilegur og þú heldur að hann muni skemmta sér.

Af hverju kostar inn?
Svo þetta standi undir sér.

En ef það verður afgangur?
Þá verða keyptar veitingar og þær gefnar þar til afgangnum hefur verið eytt.

Af hverju þarf að staðfesta mætingu?
Af því að keypt verður áfengi í samræmi við það hversu margir telja sér fært að mæta.

Af hverju er alltaf verið að breyta gömlum færslum á þessari síðu?
Við því er ekkert einhlítt svar. Kannski hefur Björn Bjarnason komist yfir aðgangsorðið í tilraunaskyni.

Saturday, January 09, 1999

6-D

Umræður

Friday, January 08, 1999

6-E

Umræður